Glæpakviss
Í tilefni af 25 ára afmæli Hins íslenska glæpafélags bjóðum við öllum lesendum glæpasagna að taka þátt í svokölluðu glæpakvissi, æsispennandi spurningakeppni sem samin er af hinum alræmda Ævari Erni Jósepssyni, formanni félagsins. Keppnin verður haldin á mörgum almenningsbókasöfnum samtímis, í aðdraganda Bókasafnsdagsins sem alltaf er fagnað í september en alþjóðlegur dagur læsis er 8. september.
Það er því um að gera að nota tímann vel og glugga í gamlar jafnt sem nýjar glæpasögur til að rifja upp hin ýmsu plott og hrollvekjandi atburði sem íslenskir höfundar hafa sett saman í bókum sínum, okkur lesendum til ánægju og yndisauka.
Jana okkar verður í hlutverki glæpakviss-stjóra. Boðið verður upp á léttar veitingar og verðlaun veitt fyrir fyrsta sætið.
Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.