Aðalskipulag
Aðalskipulag er framtíðarstefna hvers sveitarfélags, áætlun um það í hvaða átt landnotkun á að þróast og hvert fyrirkomulag byggðarinnar eigi að vera. Sú stefna er síðan eftir atvikum útfærð nánar í deiliskipulagi fyrir einstök svæði.
Ísafjarðarbær hefur í gildi metnaðarfullt aðalskipulag sem tekur á byggðum og óbyggðum svæðum í sveitarfélaginu. Skipulagið var unnið í miklu og ítarlegu samráði við íbúa, fyrirtæki, stofnanir og aðra hagsmunaaðila. Haustið 2019 var undirritaður samningur við arkitektastofuna Arkís um heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2020-2032.
Skipulagslýsing: Endurskoðun á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar
Haustið 2021 var opnað fyrir ábendingavef þar sem íbúar og aðrir sem eiga hagsmuna að gæta í sveitarfélaginu geta komið á framfæri ábendingum og hugmyndum sem verða nýttar inn í endurskoðað aðalskipulag.
Ábendingavefur vegna endurskoðun aðalskipulags
Gildandi Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar
Greinargerð og viðaukar:
Uppdrættir:
Í birtingu
Skipulagskynningar og athugasemdir eru birtar í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.