Útilistaverk og minnisvarðar
Fjölmörg útilistaverk og minnisvarða má finna víðs vegar um Ísafjarðarbæ. Hér eru helstu upplýsingar um hvert verk listaðar. Ef lesendur eru með ábendingar eða frekari upplýsingar má senda þær á postur@isafjordur.is.
Dýrafjörður
Minnisvarði um sjóslys á Dýrafirði
Varði til minningar um Dýrfirðingana þrjá sem fórust þann 10. október árið 1899 við tilraun Hannesar Hafstein, sýslumanns, til uppgöngu í landhelgisbrjótinn Royalist frá Hull.
Afkomendur þeirra sem létust létu reisa minnisvarðann.
Afhjúpun: 1999
Höfundur: Jón Sigurpálsson
Þingeyri
Lífsæðar
Við sundlaug og íþróttamiðstöð Þingeyrar stendur listaverkið Lífsæðar eftir Sverri Ólafsson.
Flateyri
Minnisvarði um fórnarlömb snjóflóðsins
Minningarsteinn um þau er fórust í snjóflóðinu sem féll á Flateyri þann 26. október 1995.
Minningarsjóður Flateyrar hafði veg og vanda að uppsetningu minnisvarðans.
Afhjúpun: 1996
Ísafjörður
Fýkur yfir hæðir
Reykjavíkurborg gaf Ísfirðingum verkið á 100 ára afmæli Ísafjarðarkaupstaðar.
Afhjúpun: 1966
Höfundur: Ásmundur Sveinsson
Harpa hafsins
Minnisvarði um upphaf vélvæðingar bátaútgerðar á Íslandi. Reist að frumkvæði Sögufélags Ísfirðinga, í samráði við afkomendur frumherja vélvæddrar bátaútgerðar.
Afhjúpun: 2004
Höfundur: Svanhildur Sigurðardóttir
Kuml
Minnisvarði um Ragnar H. Ragnar, skólastjóra Tónlistarskóla Ísafjarðar. Frumkvæði að verkinu höfðu Pétur Kr. Hafstein, Jón Páll Halldórsson og Kristján Haraldsson.
Afhjúpun: 1988
Höfundur: Jón Sigurpálsson
Martinus Simson
Eftir ljósmyndarann, fjöllistamanninn og landgræðslumanninn Martinus Simson liggja fimm útilistaverk í Skutulsfirði; tvær styttur fyrir framan Sundhöll Ísafjarðar og þrjú verk í Simsongarði í Tungudal.
Minnisvarði ísfirskra sjómanna
Minnisvarði ísfirskra sjómanna var reist með aðkomu bæjaryfirvalda og Sjómannafélags Ísfirðinga.
Styttan var endurgerð árið 2004 og var verkið kostað af Landsbankanum í tilefni 100 ára afmælis útibús bankans á Ísafirði.
Afhjúpun: 1974
Höfundur: Ragnar Kjartansson
Minnisvarði um Hannes Hafstein
Minnisvarði um fyrsta ráðherra Íslands, Hannes Hafstein, var afhjúpaður af Halldóri Ásgrímssyni, þáverandi utanríkisráðherra, þann 19. janúar 2004 og var tilefnið að 100 ár voru liðin frá því að Íslendingar fengu heimastjórn.
Minnisvarðinn er staðsettur við Fischershús, Mánagötu 1, Ísafirði, þar sem Hannes bjó árin sem hann var sýslumaður á Ísafirði, 1896-1904.
Afhjúpun: 2004
Minnisvarði um fallna sjómenn
Minnisvarði um liðlega 200 sjómenn sem fórust þegar skipalest lenti í tundurduflabelti undan Straumnesi 5. júlí 1942.
Minnisvarðinn er staðsettur í Neðstakaupstað.
Afhjúpun: 2005
Úr álögum
Sr. Jón Auðuns, fyrrum dómprófastur í Reykjavík, ánafnaði Ísfirðingum verkið í erfðaskrá sinni, til minningar um foreldra sína sem ættuð voru frá Ísafirði og úr Ísafjarðardjúpi.
Afhjúpun: 2000
Höfundur: Einar Jónsson