Skötuveisla Björgunarfélags Ísafjarðar

Skrá nýjan viðburð


Á Þorláksmessudag mun Björgunarfélag Ísafjarðar að venju bjóða til skötuveislu í Guðmundarbúð. Þetta er í 20. sinn sem félagsfólk Björgunarfélagsins þakkar fyrir sig með þessum hætti og hefur mæting verið mjög góð í öll skiptin.
Byrjað verður að bera fram veitingarnar kl. 11:30 og verða veitingar í boði eitthvað vel fram yfir hádegi. Einnig verður boðið upp á saltfisk fyrir þá sem ekki vilja skötuna.
Baukurinn verður á staðnum fyrir þau sem vilja leggja okkur lið.
Takk fyrir stuðninginn

Er hægt að bæta efnið á síðunni?