Blái hnötturinn
Leikfélag Flateyrar setur upp sígilda ævintýrið um Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason.
Villibörnin sem búa á hnettinum verða logandi hrædd þegar geimskip brotlendir. En ógurlega geimveran reynist vera hinn galsafulli Gleði-Glaumur. Hann lofar þeim endalausu fjöri og enn meira stuði í skiptum fyrir dass af æsku þeirra. En hvers virði er æskan? Og er hægt að fá hana til baka? Komið með í langhættulegasta ævintýri sem gerst hefur á Bláa hnettinum fyrr eða síðar.
Sýningartími: 90 mínútur.
Stórskemmtileg sýning sem hentar allri fjölskyldunni.
Miðaverð:
Forsöluverð: kr. 3.500.
Miðaverð eftir 12 nóv. kr. 3.900.
Nemendaverð kr. 3.000. (Leik-,grunn-,framhalds-, og -lýðskóla)
Miðaverð við hurð kr. 4.500.
Miðasala: https://www.midix.is/is/blai-hnotturinn-24-nov-2024/eid/463