Sundlaugin á Þingeyri opnar aftur
07.03.2024
Fréttir
Sundlaugin á Þingeyri hefur opnað aftur eftir miklar viðgerðir á sundlaugarkari og lögnum.
Sundlauginn var lokað í október 2023 þegar kom í ljós að sundlaugarkarið lak. Í fyrstu var talið að einungis þyrfti að skipta um dúk og gera við niðurfall og innrennslisstúta en við nánari skoðun kom í ljós að einnig þurfti að endurnýja lagnir undir keri. Því var laugarbotninn opnaður og skipt um lagnir áður en nýr dúkur var settur á.
Íbúar á Þingeyri og fastagestir laugarinnar hafa sýnt mikla biðlund á meðan sundlaugin var lokuð og er þeim þakkað innilega fyrir þolinmæðina. Í tilefni enduropnunar laugarinnar er frítt í sund í dag, fimmtudaginn 7. mars.