Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar
Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar er fyrir börn í 1-4. bekkjum í grunnskólum Ísafjarðarbæjar.
Yfirþjálfari: Daniel Badu
Netfang: ithrottaskoli@isafjordur.is
Við upphaf íþróttaskólans var hann rekin af Héraðssambandi Vestfirðinga (HSV) og byrjaði haustið 2011, íþróttaskólinn hefur verið samstarfsverkefni HSV, aðildarfélaga HSV og Ísafjarðarbæjar. Vorið 2024 voru gerðar breytingar á starfsemi HSV og heyrir íþróttaskólinn nú undir Ísafjarðarbæ.
Í skólanum er lögð áhersla á grunnþjálfun barna ásamt því að þau fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV. Daniel Badu er yfirþjálfari og sér um skipulagningu ásamt því að sjá um grunnþjálfun og boltaskóla í 1. og 2. bekk auk grunnþjálfunar í 3. og 4. bekk. Hann heldur einnig utan um þjálfun annarra greina í samstarfi við aðildarfélög HSV.
Markmið skólans eru að.
- Fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
- Fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun sé jákvæð
- Börn fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum
- Auka gæði þjálfunar
- Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
- Auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu
Æfinga- og hugmyndafræði boltaskóla HSV
Aðalmarkmið hugmyndafræði boltaskóla er: Einstaklingsmiðaðar æfingar og leikæfingar í smáum hópum með auknu erfiðleikastigi. Þjálfa færni, sjálfstraust og sköpunargleði hjá iðkendum. Gera leikinn skemmtilegan á æfingum og í leik. Virða sigur en ekki meira en gott hugarfar og frammistöðu. Bjóða upp á öruggt og lærdómsríkt umhverfi sem mætir sem best þjálfunarmarkmiðunum.
Ávinningur iðkenda: Eykur leikfærni óháð leikstöðu og eigin færni. Nýtur íþróttarinnar betur á eigin vegum/óháð eigin færni.
Ávinningur foreldra: Fagmannlegt öruggt og lærdómsríkt umhverfi fyrir barnið þitt. Þú færð gæði fyrir þína fjármuni.
Æfingaáætlun boltaskóla: Boltastjórnun 1v1 hreyfingar Leikæfingar í smáum hópum