Ísafjörður: Lokað fyrir vatn í Suðurgötu, Suðurtanga og Neðstakaupstað kl. 14 í dag

Lokað verður fyrir vatnið neðst á Skutulsfjarðareyri kl. 14 í dag, þriðjudag, vegna tengivinnu.

Lögnin sem lokað verður fyrir liggur frá Edinborgarhúsinu niður Suðurgötu, í gegnum Neðstakaupstað og alla leið niður Suðurtanga.

Gert er ráð fyrir að tengivinnan muni taka um klukkustund.