Dómsmálaráðuneytið — Héraðsdómari á Vestfjörðum

Dómsmálaráðuneytið auglýsir embætti héraðsdómara Vestfjarða laust til umsóknar, sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Vestfjarða en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum.

Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 970/2020 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf héraðsdómara.

Frekari upplýsingar um starfið

Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.

Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 2. september nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvarðanir um skipanir liggja fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.09.2024.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?