Hafrannsóknastofnun — Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis
Hafrannsóknastofnun auglýsir eftir sérfræðingi til þess að starfa við fjölbreytt verkefni tengdum umhverfisáhrifum sjókvíaeldis. Starfið felur í sér rannsóknir og vöktun á umhverfi og lífríki fjarða ásamt úrvinnslu gagna, túlkun þeirra og miðlun. Starfsstöð getur verið í Hafnarfirði, á Ísafirði eða Neskaupsstað.
Ásamt því að vakta umhverfisáhrif sjókvíaeldis á firði metur Hafrannsóknastofnun burðarþol fjarða og gefur álit í tengslum við leyfisveitingar í sjókvíaeldi. Þessi verkefni og önnur sem stofnunin sinnir tengjast og er gert ráð fyrir að nýr sérfræðingur geti tekið þátt í þeirri þverfaglegu teymisvinnu sem á sér stað innan stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Úrvinnsla gagna og miðlun niðurstaðna í ræðu og riti.
-
Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum og annarri sýnatöku.
-
Aðkoma að skipulagningu rannsókna.
Hæfniskröfur
Hæfniskröfur
-
Framhaldsmenntun í líffræði eða skyldum greinum er kostur.
-
Hæfni í gagnaúrvinnslu og notkun tölfræðiforrita (R eða sambærilegt).
-
Þekking og reynsla við að vinna með landupplýsingakerfi er kostur.
-
Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
-
Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi.
-
Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og skilmerkilegan hátt.
-
Skilyrði að geta tjáð sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Tök á norðurlandamáli er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja:
-
Ítarleg ferilskrá.
-
Afrit af prófskírteinum.
-
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
-
Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Hrönn Egilsdóttir, hronn.egilsdottir@hafogvatn.is
Sími: 6956705
Sólveig Lilja Einarsdóttir, solveig.lilja.einarsdottir@hafogvatn.is