Ísafjörður: Lokað fyrir Tungulögnina föstudaginn 28. júní

Lokað verður fyrir vatnið úr Tungulögninni á Ísafirði föstudaginn 28. júní kl. 8-15 (uppfært 28. júní kl. 12). 

Lokunin nær yfir eftirfarandi götur:

Bræðratungu
Grænagarð
Seljalandsveg 78 og uppúr
Skógarbraut 3 og 3a
Skógarbraut Seljaland
Stakkanes 1-3
Tjaldsvæðið í Tungudal

SMS hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.