Ekki lengur þörf á suðu neysluvatns á Þingeyri

Hvorki kólígerlar né E.coli gerlar ræktuðust úr endurtekningarsýnum sem tekin voru af Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða 30. nóvember á Þingeyri. Því má afletta vatnssuðu á neysluvatni á Þingeyri.

SMS hefur verið sent til íbúa á Þingeyri í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.