Opinn fundur á Flateyri með Höllu Hrund

Skrá nýjan viðburð


Verið velkomin á opinn fund með Höllu Hrund Logadóttur frambjóðanda til embættis forseta Íslands.
 
Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu.
Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.
 
Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Þau sem hafa áhuga á að kynnast Höllu Hrund og framboði hennar betur eru hvött til að láta sjá sig.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?