Vegagerðin — Verkstjóri á þjónustustöð

Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.

Starf verkstjóra við þjónustustöðina á Ísafirði er laust til umsóknar. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og sér til þess að þau séu unnin í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn þjónusta, eftirlit og verkstjórn í viðhaldi vega, jarðganga og vegbúnaðar á svæði þjónustustöðvarinnar

  • Eftirlit í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun snjómoksturs í samvinnu við yfirverkstjóra og vaktstöð Vegagerðarinnar

  • Samskipti og eftirlit með verktökum

  • Vinnur bakvaktir í vetrarþjónustu og er aðgengilegur ef þörf skapast, s.s. vegna veðurs, náttúruhamfara og slysa

Hæfniskröfur

  • Iðnmenntun æskileg

  • Reynsla af stjórnun æskileg

  • Verkstjórnarnámskeið eða sambærilegt er æskilegt

  • Meirapróf og/ eða vinnuvélaréttindi æskilegt

  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Mjög góð tölvukunnátta

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp

  • Góð öryggisvitund

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkstjórafélag Vestfjarða hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Guðmundur Sverrisson, sigurdur.g.sverrisson@vegagerdin.is

Sími: 5221000

Er hægt að bæta efnið á síðunni?