Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
931. fundur 30. maí 2016 kl. 08:05 - 09:52 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Helga Dóra Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Dagverðardalur 3 - byggingarleyfi - 2012060005

Lagt fram bréf Einars Ólafssonar fyrir hönd styrktarsjóðsins Framfarar, dags. 24. maí, þar sem reifuð er hugmynd til sátta vegna framkvæmda í Dagverðardal.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið og ræða við stjórn Framfarar um það hvernig hægt er að ljúka málinu.

2.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 - 1605010F

Fundargerð 457. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 25. maí. Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd hlustaði á erindi Sæmundar Kr. Þorvaldssonar, varðandi regluverk sem lýtur að skógrækt á einkalöndum, tilkynningarskyldu, leyfisumsóknum og umsóknum annarra aðila. Nefndin þakkar Sæmundi upplýsingarnar og fræðandi erindi.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Formanni nefndarinnar og skipulags- og byggingarfulltrúa var falið að orða umsögn varðandi starfsleyfi, út frá umræðu á fundinum. Nefndin þakkar Anton fyrir veittar upplýsingar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindi Skjólskóga varðandi gróðursetningu trjáa í Dýrafirði. Nánari staðsetning skal unnin í samráði við umhverfisfulltrúa Ísafjarðarbæjar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir torgsöluhúsinu, enda verði húsið staðsett í samráði við hafnarstjóra, tæknideild og viðkomandi lóðarhafa.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindið. Um er að ræða manngerðan hólma og er framkvæmdin endurnýjun á garði sem fyrir er.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og bendir á að ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir Dagverðardal, og því þarf að grenndarkynna byggingaráform.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd telur í ljósi framlagðra gagna, að framkvæmdin geti ekki talist meiriháttar og hafi ekki umtalsverð áhrif á umhverfið eða breyti ásýnd þess og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld, með vísan í 1. gr. reglugerðar nr. 772/2012. Umsækjandi skal vera í samráði við tæknideild Ísafjarðarbæjar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 457 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðarleigusamningur undir húsið verði framlengdur um 25 ár. Einnig að gerður verði samningur um lóð í fóstur á þeim hluta sem vísað er í skv. teikningum.

3.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 28 - 1605011F

Fundargerð 28. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 24. maí. Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 28 Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur undir niðurlag bréfsins og leggur áherslu á að reglur um heilbrigðiseftirlit verði endurskoðaðar með það að markmiði að auka skilvirkni.
  • Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 28 Nefndin fagnar frumkvæði bréfritara en ítrekar að umsagnar- og leyfisveitingarvald liggur annars staðar.
  • Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 28 Nefndin þakkar innsenda athugasemd en sér ekki þörf á því að binda ákvæði um hámarksfjölda sauðfjár í samþykktina.
  • 3.4 2016040060 Græn vika 2016
    Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 28 Rætt um Græna viku, umhverfisátak sem nú stendur yfir í Ísafjarðarbæ; gáma undir garðaúrgang, götusóp, hreinsunarátök hverfisráða, stofnana og fyrirtækja o.fl.

4.Fræðslunefnd - 368 - 1605013F

Fundargerð 368. fundar fræðslunefndar Ísafjarðarbæjar sem haldinn var 23. maí. Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.

5.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Jónasi Guðmundssyni sýslumanni vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar og veitinga að Hafnarstræti 4 á Flateyri.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

6.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt fram að nýju erindi frá Rósu Ólafsdóttur f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum dags. 9. maí vegna umsóknar um að reka gististað í flokki II að Urðarvegi 23 á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.

7.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt fram að nýju erindi frá Rósu Ólafsdóttur f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum dags. 12. apríl vegna umsóknar um að reka gististað í flokki II að Drafnargötu 4 á Flateyri.
Lagt fram til kynningar.
Arna Lára Jónsdóttir vék af fundi undir þessum lið dagskrár.

8.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt fram erindi frá Rósu Ólafsdóttur f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags 23. maí, vegna umsóknar um gistingu í flokki II að Grundargötu 2 á Ísafirði. Málið er endurupptekið frá síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.

9.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt fram erindi frá Rósu Ólafsdóttur f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 23. maí, vegna umsóknar Golfklúbbs Ísafjarðar um leyfi til veitingareksturs í golfskála í Tungudal.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við erindið.

10.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt fram erindi frá Rósu Ólafsdóttur f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 26. maí, varðandi umsókn Sterts ehf. um heimagistingu að Laugarbóli í Arnarfirði.
Lagt fram til kynningar.

11.Hestamannafélagið Hending - kröfugerð vegna reiðvallar - 2016050078

Lögð fram kröfugerð frá Marínó Hákonarsyni f.h. Hestamannafélagsins Hendingar, dags. 17. maí, um bætur vegna mannvirkja á Búðartúni í Hnífsdal.
Í framhaldi af vinnu við kostnaðargreininguna sem rædd er í bréfi Hestamannafélagsins Hendingar gerði Ísafjarðarbær tilboð í ágúst 2012 um að láta byggja nýjan reiðvöll í Engidal og afhenda hestamönnum eða leggja félaginu til eingreiðslu að fjárhæð 22,5 milljónir króna. Samningsafstaða Ísafjarðarbæjar hefur miðað að því að félagið gæti komið sér upp sambærilegri aðstöðu í Engidal og það hafði í Hnífsdal. Tillaga að samkomulagi þýddi að Ísafjarðarbær hefði látið framkvæma þá verkþætti umræddar kostnaðargreiningar sem fólu í sér sanngjarnar endurbætur fyrir aðstöðuna sem var á Búðartúni, en ekki kostnað vegna aðstöðu sem ekki var til staðar í Hnífsdal. Svar barst aldrei við því tilboði.

Ísafjarðarbær getur ekki fallist á umrædda kröfu Hestamannafélagsins Hendingar um greiðslu bóta að upphæð kr. 72.267.421 auk verðbóta frá desember 2011. Hins vegar er mikill vilji bæjarins til þess að ná samkomulagi um að Hendingu verði bættur missir aðstöðunnar í Hnífsdal. Ísafjarðarbær er reiðubúinn til að ræða eingreiðslur til Hendingar og að í framhaldinu fari fram viðræður um uppbyggingarsamninga milli Ísafjarðarbæjar og Hendingar sem miði að því að byggja upp aðstöðuna í Engidal.

Aðstöðumissir Hendingar í Hnífsdal kemur til af framkvæmdum Vegagerðarinnar við Bolungarvíkurgöng og hefur Vegagerðin því lýst vilja til greiðslu kr. 20.000.000 gegn gerð þríhliða samkomulags Ísafjarðarbæjar, Vegagerðarinnar og Hestamannafélagsins Hendingar. Við gerð samkomulagsins felst þó engin viðurkenning á bótaskyldu gagnvart Hestamannafélaginu Hendingu, í samræmi við fyrri afstöðu Ísafjarðarbæjar, heldur einlægur vilji til að hagur félagsins verði réttur með sanngjörnum hætti. Þríhliða samkomulagið snýst um að Ísafjarðarbær og Hestamannafélagið Hending geri ekki frekari kröfur á hendur Vegagerðinni vegna byggingar Bolungarvíkurganga. Vegagerðin hefur lýst sig reiðubúna til þessa samkomulags. Þrátt fyrir þessa greiðslu kr. 20.000.000,- mun Ísafjarðarbær vera tilbúinn til áframhaldandi viðræðna við Hestamannafélagið Hendingu um uppbyggingu í Engidal, eins og áður segir.

12.Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

Lagt fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín fjármálastjóra um forsendur fjárhagsáætlunar 2017-2020 og drög að 4ra ára fjárhagsáætlun og 5 ára framkvæmdaáætlun.
Drög að 4ra ára fjárhagsáætlun og 5 ára framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar og vísað til umræðu í bæjarstjórn.
Edda María vék af fundi klukkan 09:25.

Gestir

  • Edda María Hagalín - mæting: 09:05

13.Meistararitgerðir hjá Háskólasetri Vestfjarða - 2016020083

Lagt fram bréf Peter Weiss f.h. Háskólaseturs Vestfjarða dags. 6. apríl þar sem kynntar eru lokaritgerðir meistaranema við setrið.
Lagt fram til kynningar.

14.Fjórðungssamband Vestfirðinga - ýmis mál og fundargerðir 2016/2017 - 2016020005

Lögð fram beiðni Aðalsteins Óskarssonar f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga, dags. 24. maí, um umsögn um tillögu að gerð svæðisáætlunar fyrir Vestfirði.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í atvinnu- og menningarmálanefnd, umhverfis- og framkvæmdanefnd og skipulags- og mannvirkjanefnd.

15.Náttúrustofa - ársfundur 2016 - 2016050085

Lagt fram boð dags. 24. maí á ársfund Náttúrustofu Vestfjarða sem haldinn verður þriðjudaginn 14. júní klukkan 14. Einnig lagðar fram samþykktir Náttúrustofu Vestfjarða.
Bæjarráð samþykkir að Daníel Jakobsson verði fulltrúi Ísafjarðarbæjar á fundinum.

16.Ársfundur Starfsendurhæfingar Vestfjarða 2016 - 2016040063

Lögð fram fundargerð ársfundar Starfsendurhæfingar Vestfjarða og ársskýrsla félagsins fyrir árið 2015.
Lagt fram til kynningar.

17.Byggðasamlag Vestfjarða - ýmis mál 2016 - 2016050089

Lagður fram ársreikningur Byggðasamlags Vestfjarða fyrir árið 2015 og tölvupóstur Aðalsteins Óskarssonar dags. 24. maí.
Lagt fram til kynningar.

18.Kerfisáætlun Landsnets 2014-2023 - 2014050071

Lagður fram tölvupóstur Jórunnar Gunnarsdóttur f.h. Landsnets dags. 24. maí varðandi gerð kerfisáætlunar 2016-2025.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd.

19.Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048

Lagt fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 27. maí, vegna fyrirspurnar Guðmundar Rafns Kristjánssonar um stoðvirki í Kubba.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurn Guðmundar Rafns í samræmi við minnisblað sviðsstjóra.

20.Tjaldsvæði - Flateyri - 2016050086

Lagt fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, vegna óskar Litlabýlis Guesthouse um að taka að sér rekstur tjaldsvæðis á Flateyri í sumar.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur bæjarstjóra að ganga frá samningum til reynslu.

Fundi slitið - kl. 09:52.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?