Útboð: Snjómokstur á Flateyri og í Önundarfirði

Hér eru birtar fréttir af útboðum og framkvæmdum sem í gangi eru hjá Ísafjarðarbæ.

Hægt er að skoða staðsetningu framkvæmda inni á Kortasjá Ísafjarðarbæjar með því að haka í „Framkvæmdir“.

Hér verður birt yfirlit yfir þau útboð sem eru í gangi á vegum og/eða tengd Ísafjarðarbæ.

Upplýsingar um útboðin hverfa af vefnum þegar tilboðsfrestur rennur út eða eftir atvikum þegar tilboð hafa verið opnuð.

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í snjómokstur á Flateyri og í Önundarfirði fyrir tímabilið 2024-2027, með möguleika á framlengingu um allt að 2 ár.

Snjómoksturinn skal framkvæmdur í samræmi við snjómoksturreglur sveitarfélagsins, sem tryggja að allar helstu götur, bifreiðastæði og aðkomuleiðir verði mokaðar í samræmi við forgangsröðun og vinnubrögð sem koma fram í reglum Ísafjarðarbæjar.

Helstu dagsetningar:

  • Útboð auglýst: 5. september 2024
  • Fyrirspurnarfrestur: 15. september 2024
  • Lokafrestur til að skila tilboðum: 26. september 2024
  • Opnun tilboða: 27. september 2024
  • Upphaf þjónustu: 1. október 2024
  • Lok þjónustu: 30. apríl 2027

Frekari upplýsingar og útboðsgögn: Útboðsgögnin eru ekki aðgengileg á netinu og verða að nálgast beint hjá umsjónaraðila útboðsins, Eyþóri Guðmundssyni, með því að senda tölvupóst á eythorgu@isafjordur.is.

Skil á tilboðum: Tilboðum skal skila á rafrænu formi á netfangið eythorgu@isafjordur.is, merkt Tilboð í snjómokstur Flateyri og Önundarfirði. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað.