Útboð: Snjómokstur á Flateyri og í Önundarfirði
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í snjómokstur á Flateyri og í Önundarfirði fyrir tímabilið 2024-2027, með möguleika á framlengingu um allt að 2 ár.
Snjómoksturinn skal framkvæmdur í samræmi við snjómoksturreglur sveitarfélagsins, sem tryggja að allar helstu götur, bifreiðastæði og aðkomuleiðir verði mokaðar í samræmi við forgangsröðun og vinnubrögð sem koma fram í reglum Ísafjarðarbæjar.
Helstu dagsetningar:
- Útboð auglýst: 5. september 2024
- Fyrirspurnarfrestur: 15. september 2024
- Lokafrestur til að skila tilboðum: 26. september 2024
- Opnun tilboða: 27. september 2024
- Upphaf þjónustu: 1. október 2024
- Lok þjónustu: 30. apríl 2027
Frekari upplýsingar og útboðsgögn: Útboðsgögnin eru ekki aðgengileg á netinu og verða að nálgast beint hjá umsjónaraðila útboðsins, Eyþóri Guðmundssyni, með því að senda tölvupóst á eythorgu@isafjordur.is.
Skil á tilboðum: Tilboðum skal skila á rafrænu formi á netfangið eythorgu@isafjordur.is, merkt Tilboð í snjómokstur Flateyri og Önundarfirði. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað.