Vorverkin: Saltpokar og gámar fyrir garðaúrgang

Gámar fyrir garðaúrgang

Gámum fyrir garðaúrgang hefur nú verið komið fyrir í öllum kjörnum Ísafjarðarbæjar. Staðsetningar gámanna eru:

Flateyri:
Á hafnarsvæði.
Hnífsdalur:
Við félagsheimilið.
Ísafjörður:

Gámur er staðsettur inni á gámasvæði Funa en einnig er gámur fyrir utan girðingu sem hægt er að nota þegar afgreiðsla er lokuð.
Suðureyri:
Við Klofning.
Þingeyri:
Við höfnina, þar sem gámabíllinn stoppar venjulega.

Mikilvægt er eingöngu sé settur garðaúrgangur í gámana.

Salt fyrir illgresi

Líkt og fyrri ár verður bæjarbúum boðið að fá salt til að setja á illgresi og er vinna við að koma saltpokum út hafin. Minnt er á ráð garðyrkjufulltrúa um saltnotkun frá því í fyrra:

Fara þarf varlega með notkun salts í kringum gróður, sérstaklega trjáplöntur, og best er að takmarka notkun þess við gangstéttir. Lítið dugar að nota salt á kerfil, hann er seigur og lifir yfirleitt af saltaustur.