Vísindaport - Finnskir starfsnemar

Vísindaportið verður með óformlegu sniði þessa vikuna. Fjórir finnskir starfsnemar í Fab Lab á Ísafirði munu kynna hvað á daga þeirra hefur drifið frá því þeir komu til landsins og hófu starfsnám við Fab Lab smiðjur á Íslandi.  Þetta eru þau Hirko Nasku Maetala, Sirja Baltanen, Henna Jokinen og Tytti Haapakangas sem hafa undanfarnar vikur verið í starfsnámi í Fab Lab Reykjavík og núna síðustu vikuna hér á Ísafirði. Þau stunda öll nám í Raseko í Finnlandi í textíl og fornu handverki. Þess má geta að fyrr í vikunni voru þau með sérstaka kynningu um textíl í Fab Lab á Ísafirði og hér er því tækifæri fyrir þá sem misstu af því að fræðast um efnið.
Vísindaportin eru öllum opin og að þessu sinni fer það fram á ensku.