Veturnætur á helginni

Veturnætur verða dagana 25. til 28. október, þ.e.a.s. frá fimmtudegi til sunnudags. Í dag verður meðfylgjandi dagskrá dreift í öll hús á norðanverðum Vestfjörðum.
 
Þau leiðu mistök urðu við gerð dagskráarinnar sem dreift var í hús að Lúðraþytur Lúðrasveitar Tónlistarskólans gleymdist, en hann verður venju samkvæmt í verslunarmiðstöðinni Neista klukkan 12.30 á laugardegi. Þá vantar líka bókamarkað og bókaspjall Safnahússins, en allir þessir viðburðir eru inná meðfylgjandi skjali.