Verðkönnun vegna snjómoksturs

Ísafjarðarbær auglýsir verðkönnun vegna snjómoksturs og annarrar þjónustu á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Um er að ræða þrjá aðskilda samninga frá 1. janúar 2019 til 1. maí 2022. Gögn vegna verðkönnunarinnar verða afhent á tæknideild Ísafjarðarbæjar, 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði, frá og með klukkan 10 í dag. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir klukkan 13 þriðjudaginn 4. desember og verða þau þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Fyrirspyrnir vegna tilboðanna skal senda á brynjarjo@isafjordur.is í síðasta lagi þann 29. nóvember.