Vel heppnað sumar hjá vinnuskólanum

Krakkarnir í vinnuskóla Ísafjarðarbæjar voru öflugir í sumar þó síðasta vinnutímabil sumarsins hafi endað heldur snögglega hjá elsta hópnum vegna herts samkomubanns.

Samkvæmt yfirflokkstjóranum, Eydísi Evu Einarsdóttur, stóðu bæði unglingar og flokkstjórar sig einstaklega vel í ár og rúlluðu upp fjölmörgum verkefnum, meðal annars á Ísafirði, Þingeyri, Suðureyri, Flateyri og í Engidal.