Vatnslaust vegna vatnsleka
23.08.2017
Fréttir
Lögn er í sundur milli Urðarvegs og Engjavegs og er að skola í burtu göngustíg svo óhjákvæmilegt er að skrúfa fyrir vatn á stærstum hluta efri bæjar og hefja viðgerð. Ekki er hægt að bíða lengur en til klukkan 20 í kvöld, miðvikudagskvöld, að þessu sinni þar sem göngustígurinn liggur undir skemmdum. Vonandi varir vatnsleysið ekki lengur en til klukkan 23, en mögulega gæti viðgerð tekið lengri tíma.
Vatnslaust verður á Hjallavegi, Urðarvegi út að nr 15 (frá 15 – 80), Engjavegi, Seljalandsvegi 30 – 78, Miðtúni, Sætúni, Stakkanesi og Orkubúi.