Vatnslaust í Holtahverfi

Vatnslögn virðist vera í sundur í Holtahverfi og þarf að taka vatn af öllu hverfinu klukkan 13 í dag. Vatnsleysið getur varað fram undir kvöldmat, en reynt verður að leysa vandamálið eins hratt og örugglega og kostur er. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.