Vatnslaust á Ísafirði

Taka þarf kalt vatn af öllum Ísafirði, fyrir utan hluta efri bæjar, klukkan 22 í kvöld vegna endurnýjunar lagna í Urðarvegsbrekku. Vatnsleysið mun standa fram á nótt og eru íbúar beðnir um að gera viðeigandi ráðstafanir.

Einnig má búast við minni vatnsþrýstingi á Eyrinni á Ísafirði meðan framkvæmdir í Urðarvegsbrekku standa yfir.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta óhjákvæmilega veldur.