Útboð: Snjómokstur í Dýrafirði
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í snjómokstur í Dýrafirði fyrir tímabilið 2024-2027, með möguleika á framlengingu um allt að 2 ár.
Snjómoksturinn skal framkvæmdur í samræmi við snjómoksturreglur sveitarfélagsins, sem tryggja að allar helstu götur, bifreiðastæði og aðkomuleiðir verði mokaðar í samræmi við forgangsröðun og vinnubrögð sem koma fram í reglum Ísafjarðarbæjar.
Helstu dagsetningar:
- Útboð auglýst: 25. september 2024
- Fyrirspurnarfrestur: 6. október 2024
- Lokafrestur til að skila tilboðum: 10. október 2024
- Opnun tilboða: 11. október 2024
- Upphaf þjónustu: 1. október ár hvert, frá 2024 til 2027
- Lok þjónustu: 30. apríl ár hvert, frá 2025 til 2027
Frekari upplýsingar og útboðsgögn:
Útboðsgögnin skal nálgast beint hjá umsjónarmanni útboðsins, Eyþóri Guðmundssyni, með því að senda tölvupóst á eythorgu@isafjordur.is.
Skil á tilboðum:
Tilboðum skal skila á rafrænu formi á netfangið eythorgu@isafjordur.is, merkt Tilboð í snjómokstur í Dýrafirði. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað.