Uppgræðsla Suðurtanga heldur áfram

Í næstu viku verður haldið áfram þar sem frá var horfið síðasta sumar með uppgræðslu Suðurtanga með því að dreifa skít og fræjum.

Afar mikilvægt er að þeir aðilar sem eiga tæki, tól og annað á víð og dreif um svæðið fjarlægi eigur sínar sem fyrst. Á það er einnig bent að ekki er heimilt að koma hlutum til geymslu á þessu svæði og fyrirtækjum bent á að halda starfsemi sinni innan lóðamarka.