Undirbúningsfundur í Félagsbæ

Opinn undirbúningsfundur vegna móttöku flóttamanna verður haldinn í Félagsbæ á Flateyri mánudaginn 5. febrúar klukkan 17. Óskað er eftir áhugasömum einstaklingum sem vilja aðstoða við móttöku fólksins, en eins og fram hefur komið er áætlað að þrjár fjölskyldur fái húsnæði á Flateyri.

Þá viljum við minna á upplýsingafund um móttöku fólksins á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði klukkan 17 í dag, þriðjudag, og námskeið Rauða krossins sólarhring síðar í húsnæði sínu í Vestrahúsinu.