Umhverfisstofnun: Tillaga að starfsleyfi Arnarlax í Ísafjarðardjúpi

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi Arnarlax ehf. í Ísafjarðardjúpi. Um er að ræða sjókvíaeldi með allt að 10.000 tonna lífmassa á hverjum tíma og ófrjóa laxfiska.

Framkvæmdin fór í mat á umhverfisáhrifum og birti Skipulagsstofnun álit vegna þessa þann 19. febrúar 2021. Framkvæmdin rúmast innan burðarþolsmats Hafrannsóknarstofnunar fyrir Ísafjarðardjúp en ekki áhættumats sömu stofnunar og er því heimildin bundin við ófrjóa laxfiska. Í áliti Skipulagsstofnunar kemur fram að eldið muni hafa áhrif vegna aukinnar uppsöfnunar næringarefna undir og nálægt kvíum og verði talsvert neikvæð. Áhrifin muni ráðast af aðstæðum á hverjum stað og vera að mestu afturkræf með nægjanlegri hvíld svæða og ef eldi verði hætt, og tilhögun eldisins stjórnist að raunástandi á eldissvæðum. Umhverfisstofnun bendir á í því samhengi að í tillögu að starfsleyfi stofnunarinnar fyrir starfseminni eru ákvæði þess efnis að stofnunin geti einhliða frestað útsetningu seiða, bendi niðurstöður vöktunar til þess að umhverfisaðstæður séu óhagstæðar á eldissvæði og það þarfnist frekari hvíldar. Umhverfisstofnun veitti umsagnir í matsferli framkvæmdarinnar og telur að þau skilyrði sem fjallað er um endurspeglist í vöktunaráætlun rekstaraðila ásamt ákvæðum í starfsleyfi.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202001-218. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 2. apríl. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Tillaga að starfsleyfi Arnarlax ehf. Ísafjarðardjúpi
Umsókn um starfsleyfi
Drög að vöktunaráætlun
Mat á áhrifum á vatnshlot
Álit Skipulagsstofnunar og matsskýrsla Arnarlax ehf.
Endurútgefið burðarþolsmat og áhættumat erfðablöndunar
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða
Áhættumat siglingaöryggis SN36 - Snæfjallaströnd
Áhættumat siglingaöryggis SN35 – Eyjahlíð
Áhættumat siglingaöryggis SN23 - Óshlíð