Tilboð opnuð í gatnagerð á Suðurtanga

Klukkan 11 í dag voru opnuð tilboð í verkið „Suðurtangi – Gatnagerð 2017“. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 76.574.266 kr. og bárust fimm tilboð í verkið sem eru opnuð hér með þeim fyrirvara að þau eru óyfirfarin:

Þotan ehf   87.588.485

Kubbur ehf.   82.166.801

Tígur ehf.   67.701.513

Gámaþjónusta Vestfjarða ehf.   56.746.639

Búaðstoð ehf.   72.995.333