Þingeyri: Lokað fyrir vatnið kl. 16-18 í dag

Vatnslaust verður á Þingeyri milli kl. 16 og 18 í dag, föstudaginn 28. október, vegna viðgerðarvinnu.

SMS um vatnslokun hefur verið sent til íbúa á Þingeyri í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.