Þakkir frá velferðarsviði

Til ykkar sem viljið halda ykkur til hlés.

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar tók á móti gjafakortum frá ykkur að upphæð kr. 300.000,-. Gjafakortunum var skipt niður í lægri upphæðir. Það var því þó nokkur fjöldi fólks sem stendur illa fjárhagslega og/eða félagslega sem fékk óvæntan glaðning frá ykkur, ónefndum gefendum.

Það er í raun ólýsanlegt að sjá viðbrögð fólks við þessum gjöfum. Margir segja að þetta bjargi jólunum og áramótunum hjá þeim.

Fyrir hönd velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar vil ég þakka af alhug þá hlýju og þann mannkærleika sem lýsir sér með þessu framtaki ykkar.

Með innilegum hátíðarkveðjum og von um frið og velsæld á nýju ári.

Margrét Geirsdóttir,
sviðsstjóri velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar