Tangi hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi skólaumhverfi
23.06.2021
Fréttir
Helga Björk Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Sólborg, Elísabet Samúelsdóttir, formaður fræðslunefndar, Jóna Lind Kristjánsdóttir, deildarstjóri Tanga, Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar, Jensína K. Jensdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Sólborg.
Leikskóladeildin Tangi á Ísafirði hefur hlotið viðurkenningu fræðslunefndar Ísafjarðarbæjar fyrir framúrskarandi skólaumhverfi vegna þess öfluga útináms sem deildin býður upp á.
Í rökstuðningi nefndarinnar segir meðal annars: „Verkefnið gengur út á að auka þekkingu nemenda á nánasta umhverfi sínu og á veðrinu, auka samstöðu nemenda og efla nemendur í að fara út í allskonar veðri. Starfsfólk og nemendur Tanga láta veðrið ekki stöðva sig þegar til dæmis er farið á gönguskíðum um bæinn, í ævintýraferð inn í skóg eða þegar gerð eru skýli upp í Stórurðarlundi. Útinámið á Tanga þykir bæði framúrskarandi og metnaðarfullt, sem vekur athygli langt út fyrir bæjarmörkin.“
Starfsfólki og nemendum Tanga er óskað til hamingju með viðurkenninguna.