Sundlaugin á Flateyri: Áætluð verklok 15. september
21.08.2020
Ýmsar tilkynningar
Vinna við viðgerð á þaki sundlaugarinnar á Flateyri miðar vel áfram og eru verklok áætluð þann 15. september. Verkið hefur falið í sér rif og förgun á þakdúk, borðaklæðningu, loftunarlektum, hluta af sperrum og fleiru af þaki sundlaugarinnar. Einnig rif og förgun á loftaklæðningu, rakavarnarlagi og hluta þakeinangrunar.
Stór aukaverk hafa komið upp samhliða þakviðgerðinni, meðal annars hafa gluggar, loftræsting og lagnakerfi verið löguð.
Í framhaldi af verklokum verður laugin aftur fyllt svo hægt sé að taka á móti gestum á ný. Nákvæm dagsetning opnunar verður tilkynnt hér á vef Ísafjarðarbæjar og á Facebook-síðu sveitarfélagsins um leið og hún liggur fyrir.