Sundhöll Ísafjarðar - Hugmyndasamkeppni

Ísafjarðarbær efnir til hugmyndasamkeppni um aukna og bætta íþrótta- og baðaðstöðu við Sundhöll Ísafjarðar. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.  Leitað er eftir snjöllum hugmyndum með það að markmiði að finna tillögu sem leysi viðfangsefnið á heildstæðan hátt með góðu fyrirkomulagi og vandaðri byggingarlist til samræmis við núverandi byggingu sem hönnuð er af Guðjóni Samúelssyni. Sundhöllin á 70 ára afmæli á árinu. Sérstök áhersla er lögð á aðlaðandi lausn á aðkomu og aðgengi fyrir alla innanhúss og utan, með samgönguleiðum sem virki vel fyrir mannvirkið í heild. Einnig er lögð áhersla á vandaða hönnun baðastöðu utandyra, þar sem notið verði sólar og skjóls í heitum pottum og í nærumhverfi þeirra. 

Frekari upplýsingar og keppnislýsingu má nálgast á sérstakri undirsíðu á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.