Sumaropnun sundlauga Ísafjarðarbæjar

Sumaropnun í sundlaugum Ísafjarðarbæjar tekur gildi í kringum helgina. Föstudaginn 1. júní hefst hún í Þingeyrarlaug, en mánudaginn 4. júní á Flateyri og Suðureyri. Á Ísafirði verður viðhaldsstopp í næstu viku og opnar laugin samkvæmt sumardagskrá laugardaginn 9. júní.

Allar laugar bæjarins verða lokaðar á 17. júní nema Þingeyrarlaug sem verður opin milli klukkan 10 og 18.

Opnunartími lauganna í sumar verður sem hér segir:

 

Sundhöll Ísafjarðar

Virkir dagar: 10 – 21
Helgar: 10 – 17

 

Suðureyrarlaug

Allir dagar: 11 – 19

 

Flateyrarlaug

Virkir dagar: 10 – 20
Helgar: 11 – 17

 

Þingeyrarlaug

Virkir dagar: 8 – 21
Helgar: 10 – 18