Suðureyri: Íbúafundur miðvikudaginn 23. mars
15.03.2022
Fréttir
Ísafjarðarbær boðar til íbúafundar vegna olíulekans á Suðureyri miðvikudaginn 23. mars kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn í gegnum fjarfundabúnað.
Á dagskrá verða erindi frá Orkubúi Vestfjarða, Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða. Einnig munu sitja fyrir svörum fulltrúar frá slökkviliði, höfnum og umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar og Verkís.
Fundarstjóri er Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.