Stuðsamningur við Aldrei fór ég suður endurnýjaður
04.03.2022
Fréttir
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti stuðsamning Ísafjarðarbæjar við tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður fyrir árin 2022-2024 á 491. fundi sínum þann 3. mars.
Samningurinn var undirritaður í dag, 4. mars, af þeim Birgi Gunnarssyni, bæjarstjóra, og Guðmundi M. Kristjánssyni, stjórnarformanni Aldrei fór ég suður. Undirskriftin átti sér stað á Aldrei fór ég suðurgötu á Suðurtanga á Ísafirði og þeim til halds og trausts var Örn Elías Guðmundsson, rokkstjóri hátíðarinnar.
Stuðsamningur Ísafjarðarbæjar og Aldrei fór ég suður 2022-2024