Stórir skipadagar í sumar

Á morgun eru þrjú skemmtiferðaskip væntanleg til Ísafjarðar og er sameiginlegt rými í þeim fyrir um 4.700 farþega. Morgundagurinn er einn af níu dögum í sumar þar sem gestafjöldi fer yfir 3.000 og liggur í augum uppi að eitthvað á eftir að fara fyrir fólkinu. Eins og alltaf þegar fjölda gesta ber að garði þá reynir á gestrisni, tillitsemi og umburðarlyndi. Í kjölfar vinnu starfshóps um framtíðarskipan þessara mála mun Ísafjarðarbær á næstu dögum gefa út bækling fyrir farþega skipanna þar sem þeir eru boðnir velkomnir og farið er yfir það á skemmtilega kómískan hátt hvað ber að forðast.

Við gerð bæklingsins var litið til þeirra viðmiða sem AECO, samtök skipafélaga sem sigla á norðurslóðum, hafa gefið út. Listmálarinn og skopmyndateiknarinn Pétur Guðmundsson var fenginn til að túlka það sem mest hefur reynt á þolrif heimamanna og vonandi verður bæklingurinn til að koma í veg fyrir mögulega árekstra.