Skipulagslýsing: Nýtt deiliskipulag fyrir innri hluta Tunguhverfis
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 21. nóvember 2024 að auglýsa skipulagslýsingu, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna vinnu við gerð deiliskipulags fyrir innri hluta Tunguhverfis á Ísafirði. Lýsingin er dags. 8. nóvember 2024 og er unnin af ráðgjöfum Verkís hf. fyrir Ísafjarðarbæ.
Markmið Ísafjarðarbæjar með skipulagsgerðinni er að móta vandað nýtt íbúðarhverfi sem tekur mið af aðliggjandi íbúðarbyggð og hefur sterk tengsl við útivistarsvæði í Tungudal sem og náttúru og sögu svæðisins, í samræmi við áherslur gildandi aðalskipulags.
Ísafjarðarbær leggur áherslu á að sjálfbær þróun og hagsmunir íbúa sveitarfélagsins verði hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku um útfærslu íbúðarhverfisins. Með skipulagsgerðinni gefist íbúum og hagaðilum möguleiki á að hafa áhrif á sitt nærumhverfi.
Skipulagslýsingin er aðgengileg á bæjarskrifstofum, Hafnarstræti 1, Ísafirði, og í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 1420/2024, frá 25. nóvember 2024 til og með 19. desember 2024.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í Skipulagsgáttina eða senda skriflega til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, b.t. skipulagsfulltrúa eða á skipulag@isafjordur.is .
Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar