Skíðavertíðin komin á fullt á skíðasvæðum Ísafjarðarbæjar

Það var fjör á skíðasvæðum Ísafjarðarbæjar í dag, laugardag, þegar Tungudalur opnaði í fyrsta sinn þennan skíðaveturinn og aðstæður fyrir skíðagöngu á Seljalandsdal voru með allra besta móti.
Við minnum á að árskorthafar í sundlaugum Ísafjarðarbæjar fá 50% afslátt af vetrakorti á skíði. Kortin er hægt að kaupa í skíðaskálum á opnunartíma, sjá nánar á www.dalirnir.is.