Skáknámskeið í GÍ

Birkir Karl Sigurðsson skákþjálfari býður í samstarfi við Ísafjarðarbæ upp á skáknámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára dagana 7. og 8. júní. Birkir er með alþjóðleg skákþjálfararéttindi frá FIDE og mun kennslan fara fram í Grunnskólanum á Ísafirði. Verð er 6.500 krónur og skráning fer fram í gegnum póstfangið birkirkarl@gmail.com