Síðasta ferð vestur fellur niður

Farþegar Strætisvagna Ísafjarðarbæjar athugið. Vegna versnandi veðurspár verður síðasta ferð frá Ísafirði til Flateyrar/Þingeyrar klukkan 15.05 í dag, fimmtudag. Svo gæti farið að ferðin til Suðureyrar klukkan 17.10 falli einnig niður. Fólk er beðið um að fylgjast vel með í talshólfsnúmeri 878-1012 þar sem nýjustu upplýsingar eru lesnar inn. Þar verður einnig tilkynnt snemma í fyrramálið um mögulegar truflanir á áætlun.