Sex umsækjendur um stöðu verkefnastjóra á Flateyri
26.04.2021
Fréttir
Sex sóttu um stöðu verkefnastjóra á Flateyri, en umsóknarfrestur rann út 22. apríl sl. Umsækjendurnir eru:
Hjörleifur Finnsson, ráðgjafi í ferða- og umhverfismálum
Ingimar Ingimarsson, sveitarstjórnarmaður og kennari
Magnús Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri og sjómaður
Pétur Snæbjörnsson, sjálfstætt starfandi við ráðgjöf og nefndarstörf
Steinunn Ása Sigurðardóttir, stjórnmálafræðingur
Valgeir J. Guðmundsson, sérfræðingur í innleiðingu Google-lausna, kennari
Hlutverk verkefnastjóra er að leiða nýsköpunar- og þróunarverkefni á Flateyri, í samstarfi við verkefnisstjórn á grundvelli samnings milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðarstofu.