Sérreglur um byggðakvóta í Ísafjarðarbæ samþykktar

Bæjarstjórn hefur samþykkt tillögu bæjarstjóra um uppfærðar sérreglur um úthlutun byggðakvóta í Ísafjarðarbæ. Kallað var eftir sjónarmiðum íbúa og hagsmunaðila varðandi tillögur um sérreglur byggðakvóta í lok ársins 2022 en alls bárust sjö umsagnir.

Að sögn Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra, byggir tillagan á fyrri sérreglum sveitarfélagsins að mestu leyti. „Það hefur myndast þokkaleg sátt um sérreglur Ísafjarðarbæjar undanfarin ár og því var ákveðið að nýta þær við uppfærsluna, að því undanskildu að nú er gerð krafa um að landað sé innan byggðarlags í stað heimildar til að landa innan sveitarfélagsins,“ segir Arna. „Við höfðum markmið laganna um byggðakvóta að leiðarljósi, það er að reyna að efla útgerð og vinnslu í hverju byggðalagi. Áfram verður hægt að sækja um undanþágu til að hafa vinnslu utan byggðalags, en þó innan sveitarfélags, ef sérstakar aðstæður krefjast þess.“

Breytingartillagan í heild

Fyrri reglur

Tilkynning matvælaráðuneytis um úthlutun byggðakvóta