Seinkun verkefnis um almenningsamgöngur fyrir Flateyri

Eins og fólki kann að vera kunnugt stóð til að hefja pöntunaraskstur á milli Flateyri og Ísafjarðar þann 1. janúar 2023, svo kallað verkefni A10-Flateyri um almenningssamgöngur.

Nú hefur komið í ljós að verkefnið frestast lítilega vegna vinnu við rafræna lausn fyrir verkefnið. Gert er ráð fyrir að það hefjist á fyrstu vikum ársins og verður ný upphafsdagsetning auglýst sérstaklega.

Allar frekari upplýsingar um verkefnið má fá hjá Hjörleifi Finnssyni, verkefnastjóra á Flateyri, hjorleifur@isafjordur.is.