Samið við Viðburðastofu Vestfjarða um umsjón og framkvæmd hátíðahalda

Arna Lára bæjarstjóri og Ragnar Heiðar hjá Viðburðastofu Vestfjarða við undirritun samningsins.
Arna Lára bæjarstjóri og Ragnar Heiðar hjá Viðburðastofu Vestfjarða við undirritun samningsins.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt verksamning við Viðburðastofu Vestfjarða um umsjón og framkvæmd hátíðahalda á vegum Ísafjarðarbæjar, árshátíðar og starfsmannadags árin 2023-2025.

Samkvæmt samningnum tekur Viðburðastofan að sér að skipuleggja, hafa yfirumsjón með og sjá um framkvæmd við eftirfarandi hátíðahöld og/eða skemmtanir á Ísafirði árin 2023-2025:

  • Þjóðhátíðardaginn 17. júní
  • Tendrun jólaljósa á Ísafirði, Flateyri, Suðureyri og Þingeyri
  • Skíðaviku um páska
  • Árshátíð starfsmanna Ísafjarðarbæjar árið 2024
  • Sameiginlegan starfsdag starfsmanna Ísafjarðarbæjar árin 2023 og 2025

Samningnum var vísað til samþykktar í bæjarstjórn af menningarmálanefnd en í minnisblaði sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, sem lagt var fyrir nefndina, kemur fram að með því að gera samning til lengri tíma og útvista verkefninu í heild sinni er hægt að tryggja stöðugleika í viðburðahaldi bæjarins, auk þess sem það gefur svigrúm til að horfa til lengri tíma hvað varðar búnað og skipulag. Þá bætir samningurinn yfirsýn bæjarins á kostnaði vegna viðburða og hátíðahalds, auk þess að lækka kostnað vegna einstakra útseldra þátta hjá sveitarfélaginu. Í minnisblaðinu kemur einnig fram að skipulag og framkvæmd viðburða á vegum bæjarins hefur breyst þó nokkuð undanfarin ár og kaup á einstakri þjónustu og verkhlutum aukist.