Samið við Hellur og lagnir ehf. um endurgerð lóðar Eyrarskjóls
14.09.2020
Fréttir
Bæjarráð samþykkti á 1121. fundi sínum tillögu Axels Rodriguez Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, um að samið verði við Hellur og lagnir ehf. um verkið „Eyrarskjól-lóð“ sem felur í sér endurgerð lóðar leikskólans Eyrarskjóls á Ísafirði, landmótun, uppsetningu leiktækja, hellulögn og fleiri verkþætti.
Í minnisblaði sviðsstjóra kemur fram að verkið hafi verið boðið út í júní sl. og þá hafi aðeins eitt tilboð borist í verkið sem var 158% af kostnaðaráætlun. Tilboðinu var hafnað og í kjölfarið var leitast við að ganga beint til viðræðna við verktaka á grundvelli útboðsgagna. Samkvæmt minnisblaði er fyrirtækið Hellur & Lagnir ehf. tilbúið að ganga til samninga á grundvelli útboðs fyrir kr. 19.355.300, sem er 117% af kostnaðaráætlun.