Raskanir vegna veðurs

Vegna veðurs og að höfðu samráði við veðurfræðinga hafa seinni ferðir strætó til og frá Flateyri/Þingeyri verið felldar niður í dag, miðvikudag. Farið verður frá Ísafirði klukkan 13.00, en aðrar ferðir á þessari leið verða felldar niður. Þá biðjum við notendur um að fylgjast með varðandi ferðir til og frá Suðureyri og ferðir frístundarútu til og frá Bolungarvík, en upplýsingar um frekari raskanir verða settar inn á upplýsingatalhólfið 878-1012.