Ráðning skólastjóra við sameinaðan leik- og grunnskóla á Flateyri
13.04.2018
Fréttir
Kristbjörg Sunna Reynisdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við sameinaðan leik- og grunnskóla á Flateyri. Kristbjörg lauk námi frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands árið 2011 með B.Ed gráðu í grunnskólakennarafræði. Frá 2006 hefur hún starfað sem grunnskólakennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar, m.a. sem umsjónar- og fagreinakennari.
Kristbjörg mun hefja störf þann 1. ágúst næstkomandi og bjóðum við hana hjartanlega velkomna til starfa.